Margir skokkuðu til góðs

Í gær var árlegt lokahlaup skokkhóps Árna Stefánssonar og að þessu sinni var skokkað til styrktar Magnúsi Jóhannessyni.

Að sögn Árna tóku 80 manns þátt, þar af 50 manns sem skokkuðu og 30 sem hjóluðu. Létu skokkararnir ekki mótvindinn aftra sér en að sögn þeirra sem tóku þátt setti norðangjólan svolítinn strik í reikninginn.

Þátttakendur hófu ferð sína á mismunandi stöðum, eftir því sem þeir treystu sér til og lögðu sumir af stað allt frá Lýtingsstaðahreppi. Þuríður Harpa Sigurðardóttir lét ekki sitt eftir liggja og lagði góðum málstað lið. Hún lagði af stað hjólandi frá Glaumbæ uppúr kl. 9:30 og kom með þeim fyrstu að Sundlaug Sauðárkróks um kl. 12:30. Þar var tekið á móti fólkinu með léttum veitingum.

Þeir sem vilja leggja góðu málefni lið geta lagt inn á styrktarreikning Magnúsar: 0161-15-550279 – kt: 110468-3429

Fleiri fréttir