Margrét Eir og Thin Jim í Sauðárkrókskirkju

Söngkonan Margrét Eir og hljómsveitin Thin Jim verða með tónleika í Sauðárkrókskirkju föstudagskvöldið 8. júlí næstkomandi. Tónleikana átti upphaflega að halda s.l. vetur en listafólkið komst ekki norður yfir heiðar vegna veðurs. Að sögn Margrétar Eirar eru lögin á dagskránni frumsamin undir áhrifum frá bandarískri þjóðlagatónlist, blús, rokk og kántrý og mikið sungið í röddum.

–Það má segja að við séum að hita upp fyrir Það eru sögur á bak við lögin sem eru sagðar og eru mikið tengd Íslandi og náttúrunni, segir Margrét sem hlakkar til að koma í kirkjuna en þar hefur hún sungið áður bæði við brúðkaup og jarðarfarir.

Hljómsveitin Thin Jim hefur verið starfandi í þrjú ár og á þessum tíma hefur hún sent frá sér nokkur lög sem hafa hljómað á útvarpsstöðum landsins. Fyrsti lagið sem hljómsveitin gaf út var Old union station og fékk mjög góðar viðtökur hér á landi og erlendis. Fyrir rúmlega ári sendi Thin Jim 4 laga útvarpsdisk til Bandaríkjana og Kanada og lögin Green walls of Eden og Old union fengu spilun á um 200 útvarpsstöðum.

Hljómsveitin er að klára sinn fyrst geisladisk sem kemur út næsta haust. Meðlimir sveitarinnar eru spenntir að spila í Sauðárkrókskirkju þann 8. júli og ætti sá vetvangur að henta ljúfri tónlistinni vel.

Meðlimir sveitarinnar eru söngdúettinn Margrét Eir og Kristófer Jensson, Jökull Jörgensen á bassa, Gísli Magnason á píanó,  Börkur Birgisson á gítar, Scott Mclemore, trommur og Birgir Ólafsson , gítar.

Þess má geta til gamans að Gísli Magnason bjó á Króknum um tíma og gat sér góðs orðs fyrir góðan söng og Jökull er bróðir Helgu Rósu Guðjónsdóttur sem býr á Króknum.

Fleiri fréttir