Margt er brallað í Blönduskóla
Skólastarf er nú hafið um allt Norðurland vestra eins og annars staðar á landinu. Á vef Blönduskóla á Blönduósi er hægt að fylgjast með því sem þar er starfað og skoða myndir úr skólastarfinu.
Á vefnum segir að þrátt fyrir að hafa aðeins verið í skólanum í tvær vikur þá séu nemendur búnir að bralla ýmislegt. Farið hefur verið í gönguferðir um bæinn, lagðar skordýragildrur og þeirra vitjað, iðkaðar ýmsar íþróttir úti og stærðfræðin líka, og svo auðvitað stundaðar allar hefðbundnar námsgreinar og fleira og fleira.
„Við höfum einn nýjan kennara við skólann en það er Eyþór Franzson Wechner sem kennir tónmennt en hann er einnig kennari við Tónlistarskólann og organisti í Blönduóskirkju,“ segir ennfremur í frétt á vef Blönduskóla.