Maríudagar á Hvoli í Vesturhópi

Um næstkomandi helgi 14. og 15. júlí ætlar fjölskylda Maríu Hjaltadóttur að heiðra minningu hennar en 18. júlí næstkomandi eru 20 ár frá fráfalli þessarar miklu listakonu. Af því tilefni ætlar fjölskyldan að vera með sýningu á nokkrum verkum hennar og verkum eftir einstaklinga í stórfjölskyldunni á milli klukkan 14 og 19 báða dagana í skemmunni á Hvoli í Vesturhópi.

María var fædd 1. júlí 1924 í Reykjavík og ólst þar upp. Hún fór sem kaupakona að Lækjarmóti í Víðidal og kynntist eiginmanni sínum Jósef Magnússyni. Þau eignuðust 10 börn en tvö þeirra dóu á unga aldri. María var mjög listhneigð en hún hafði lítinn tíma fyrir þá iðju fyrr en börnin voru uppkomin. Þá fór hún að mála og einnig kenndi hún nokkur ár myndmennt við Vesturhópsskóla. María lést aðeins 68 ára að aldri.

Margir í stórfjölskyldu Maríu eru listhneigðir og langar þeim að leyfa fólki að njóta þess að líta verkin augum og um leið að þiggja veitingar.

Sýningin er styrkt af menningarráði Norðurlands vestra.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir