Marteinn steggjaður

Eflaust hafa einhverjir rekið upp stór augu er þeir sáu aðsenda grein hér á Feyki.is fyrr í dag eftir hinn skelegga Martein Jónsson framkvæmdastjóra Kjarnans á Sauðárkróki þar sem farið var yfir þau verk sem honum þóttu hvað merkilegust hjá Jóni forseta Sívertssen. Þarna var um hrekk að ræða hjá félögum hans sem tóku hann herskildi í dag og steggjuðu með viðeigandi hætti.

Það skal tekið skýrt fram að greinin var ekki eftir Martein og lýsir á engan hátt svo viðurkennt sé skoðunum hans á málefnunum sem komu fram. Hins vegar mun það vera nokkuð nærri lagi að Marteinn mun ganga upp að altarinu seinna í sumar og ganga að eiga sína heittelskuðu sambýliskonu. Greinin hefur nú verið fjarlægð þar sem brandarinn er búinn.

Fleiri fréttir