Matarhandverk 2014
Í haust verður efnt til Matarhandverks 2014 sem er viðburður á landsvísu. Saman stendur viðburðurinn af keppni, fræðsluerindum og sölusýningu, að sænskri fyrirmynd. Sagt er frá þessu á heimasíðu SSNV.
Svenska Mästerskapen i Mathantverk er keppni sem hefur verið haldin í 17 ár við góðan orðstír. Haustið 2013 tóku 10 íslensk fyrirtæki þátt í henni og unnu til fernra verðlauna.
Keppni verður á milli matarhandverksframleiðenda þar sem framleiðendur fá hlutlaust mat á sína vöru og ábendingar um það sem betur mætti fara. Veitt verða verðlaun fyrir framúrskarandi vörur sem dæmdar verða eftir bragði, útliti og handverki við framleiðsluna. Keppnin verður kynnt á landsvísu og áhersla lögð á þann landshluta sem stendur að keppninni hverju sinni.
Fræðsluerindi verða flutt á sýningunni sem tengjast vöruþróun og matvælaframleiðslu. Verslun/sölubás verður á staðnum þar sem framleiðendum matarhandverks gefst kostur á að selja vöru sína til gesta á sýningunni.
Sýningin er opin framleiðendum sem framleiða matvöru í smáum stíl úr eigin hráefni eða hráefni úr nærumhverfi framleiðslustaðar. Sýningin er jafnframt opin þjónustuaðilum matvælageirans þar sem þeir geta kynnt sínar tæknilausnir, vörur og þjónustu.
Áhugasömum gefst kostur á að svara eftirfarandi spurningum og senda inn athugasemdir í síðasta lagi 16. júlí á netfangið viktoria@atvest.is.
Hefur þú eða fyrirtæki þitt áhuga á að taka þátt í matvælakeppni fyrir handverksframleiðendur?
Hefur þú áhuga á skráningu á fyrirlestra og fræðslu Matarhandverks 2014?
Hefur fyrirtæki þitt áhuga á að vera með vöru til sölu í verslun sýningarinnar?
Til að fá nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við Viktoríu Rán Ólafsdóttur í síma 451 0077 eða tölvupósti í netfangiðviktoria@atvest.is.