Maurice Miller nýr leikmaður Tindastóls

Körfuknattleiksdeild Tindastóll hefur samið við bandaríska leikstjórnandann Maurice Miller um að leika með úrvalsdeildarliði þess í vetur. Mun hann leysa Eryk Watson af hólmi en hann stoppaði stutt við.

 

Á Tindastóll.is segir að Maurice, eða Moe, hafi leikið með Georgia Tech háskólanum sl. vetur og útskrifast sl. vor. Skólinn lék í ACC deildinni í háskólaboltanum sem talin sé sterk deild.

Von er á kappanum fljótlega, en það er háð hraða pappírsvinnunnar sem þarf að inna af hendi. Nánari upplýsingar um kappann má finna HÉR.

Moe mun vera um 188cm hár og var hann með 6 stig að meðaltali í leik á sínu lokaári með Georgia Tech skólanum, tók 2.2 fráköst og sendi 2.4 stoðsendingar á þeim 20 mínútum sem hann lék að meðaltali.

Þá segir einnig á Tindastólsvefnum að Trey Hampton sé væntanlegur á Krókinn í næstu viku.

Fleiri fréttir