Með bakáverka eftir vélsleðaslys

Eins og sagt var frá á Feykir.is í gær sótti björgunarsveitin á Sauðárkróki í gær slasaða konu sem ók vélsleða fram af hengju í Laxárdal. Fóru björgunarmenn auk sjúkraflutningamanns á staðinn með bíl og tvo vélsleða.

Þegar að var komið reyndist hægt að aka björgunarsveitarbílnum beint á slysstað og var manninum ekið þangað sem sjúkrabíll beið hans og flutti á sjúkrahús.

Konan var með bakáverka og að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki er ekki ljóst hversu alvarlegir þeir eru en konan, sem er um tvítugt, var með meðvitund þegar hún var flutt á Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki til aðhlynningar.

Slysið átti sér stað í Hestgili og fór sleði konunnar fram af snjóhengju og féll sleðinn ásamt konunni um 10 metra niður í gilið áður en þau staðnæmdust.

Fleiri fréttir