Meðalþungi lamba í sláturtíð 16,16 kg

Sláturtíð hjá Kjötafurðastöð KS lauk fimmtudaginn 30. október. Samkvæmt vef Kaupfélags Skagfirðinga hefur verið slátrað 109.950 kindum það sem af er ári og var meðalþungi lamba í sláturtíð 16,16 kg, sem er hækkun á meðalþunga frá fyrra ári um tæp 300 gr. Meðaleinkunn fyrir gerð var 8,75 og 6,63 fyrir fitu.

Á vefnum segir að slátrun og úrvinnsla hafi gengið vel, en talsverð breyting varð milli ára í útfærslu á kjötskurði og pökkun. Má þar nefna framleiðslu á lamba kórónu, læri án mjaðmabeins, stuttum lambahrygg og svokallaðri lamba öxl.

„Allt eru þetta vörur sem gerir lambakjötið girnilegra og í raun aðgengilegra fyrir neytendur í formi smærri sölueininga. Með þessu er enn eitt skrefið stígið í vöruþróun og bættri framsetningu á lambakjöti fyrir íslenska neytendur en Kjötafurðastöð KS hefur verið leiðandi á undanförnum árum á því sviði,“ segir á vefnum.

Útflutningur hefur gengið vel og er verið að lesta síðustu gámana sem ætlaðir eru til útflutnings á þessu ári. Helstu markaðir eru Asía, Spán, Bretland og Rússland og hluti hliðarafurða fer til Hollands og þaðan á aðra markaði. Eftir áramót verða svo sendir út gámar með lambaskrokkum á Noreg og Japan. Gærusala hefur ekki gengið sem skildi og eru um 60. þús. gærur óseldar.

Loks segir að stefnt sé að því að vera með síðustu sauðfjár slátrun ársins 28. nóvember.

Fleiri fréttir