Meiri Gauragang
Það er heldur betur gauragangur hjá nemendum FNV á Sauðárkróki en nú standa sýningar yfir á þessu geysivinsæla leikriti eftir Ólaf Hauk Símonarson. Hátt í 80 nemendur koma að sýningunni sem fjallar um töffarann og erkiunglingurinn Orm Óðinsson sem vart þarf að kynna. Gunnar Rögnvaldsson leit við á sýningu og sendi Feyki eftirfarandi orðsendingu.
„Í gærkvöldi skrapp ég að sjá sýningu nemenda Fjölbrautaskólans á hinu skemmtilega verki Ólafs Hauks Símonarsonar Gauragangur. Skemmst er frá að segja að uppsetningin er bráðsmellin og öllum þeim sem að henni koma til sóma. Það er á hinn bóginn ekki fyrirhafnarlaust að koma jafn viðamiklu verki á fjalirnar. Leikstjóri, leikarar, sviðsfólk og hljómsveitin hafa lagt á sig gríðarmikla vinnu sem bætist ofan á krefjandi skólastarf og hjá sumum launavinnu að auki. Margra vikna undirbúningur, stífar æfingar fram á kvöld og loks sýningatörn segir okkur að ófáir klukkutímar hafa farið í stykkið. Vissulega fá þátttakendur framlagið metið sem einingu í skólanum, en hitt hlýtur að vega þyngra sem er áhugi unga fólksins að skapa, vera virk, skemmta sér og okkur hinum. Sýnum þessu kraftmikla efnilega fólki að við metum þeirra framlag, fjölmennum á sýningarnar og hvetjum þau til dáða. Þetta er fólkið sem á eftir að skemmta okkur um langa framtíð. Bjóðum þau velkomin á svið“.
Næstu sýningar:
- 5. sýning þriðjudaginn 22. nóvember kl. 20
- 6. sýning miðvikudaginn 23. nóvember kl. 20
- 7. sýning fimmtudaginn 24. nóvember kl. 20
- 8. sýning föstudaginn 25. nóvember kl. 20