Meistaraflokkur Tindastóls/Hvatar heyrir til fortíðarinnar
Knattspyrnudeildir Tindastóls og Hvatar tóku þá ákvörðun í gærkveldi að endurnýja ekki samstarfsamninginn sem undirritaður var fyrir ári síðan og munu félögin því ekki halda úti sameiginlegu liði í meistaraflokki karla á næstu leiktíð en samkvæmt sameiginlegri tilkynningu félaganna munu þau þó halda áfram að eiga gott samstarf, m.a. í starfsemi yngri flokka.
Það verður lið Tindastóls sem mun taka sæti sameiginlega liðsins í 1. deild en knattspyrnudeild Hvatar er að íhuga hvort félagið muni senda lið til leiks í deildarkeppni KSÍ á næsta ári.