Miðaldakort af Skagafirði
Félagið á Sturlungaslóð í Skagafirði er að gefa út miðaldakort af Skagafirði. Þetta er glæsilegt þrívíddarkort þar sem merkt eru inn bæjanöfn og örnefni sem getið er um í rituðum heimildum fyrir árið 1400.
Akvegir eru merktir inn ferðamönnum til glöggvunar og þeirra sem vilja fara á milli staðanna á Sturlungaslóðinni sem búið er að merkja og gera aðgengilega. Engin nöfn eða örnefni sem orðið hafa til eftir 1400 eru merkt á kortið þannig að t.d. þéttbýlisstaðirnir eins og Varmahlíð, Sauðárkrókur og Hofsós og margir fleiri staðir eru ekki á kortinu en mörg bæjanöfn og örnefni sem eru löngu horfin eru merkt inn. Þetta er því góð heimild fyrir þá sem eru sérstakir áhugamenn um miðaldir.
Aftan á kortinu eru myndir og stuttir pistlar um staðina á Sturlungaslóðinni, Víðimýri, Reynistað, Geldingaholt, Selvík, Hegranesþing, Víðines í Hjaltadal, Flugumýri, Haugsnes og Róðugrund og Örlygsstaði. Þar er sagt frá þeim atburðum sem þar gerðust á 13. öldinni.
Kortin eru tvö, annað á íslensku og hitt á ensku og þýsku. Það er von félagsins að heimamenn og gestir sem koma til Skagafjarðar geti notið þess að fara um fjörðinn og fræðast um alla þá stóru atburði sem hér gerðust fyrr á öldum.
Kortin má nálgast í Skagfirðingabúð og KS í Varmahlíð.
/Fréttatilkynning