Miðasala á þorrablót Umf. Kormáks hefst í dag

Þorrablót Umf. Kormáks verður haldið í Félagsheimilinu Hvammstanga n.k. laugardag, 4. febrúar 2012. Húsið opnar kl. 20:00 og þorrablótið sjálft hefst kl. 20:30. Hljómsveitin Stjórnin, Sigga Beinteins og Grétar Örvars, ætla að sjá um danstónlistina.

Miðasalan hefst í kvöld, mánudaginn 30. janúar, kl. 21:00, og fer fram í Félagsheimilinu Hvammstanga (gengið inn að sunnanverðu undir svölunum). Miðar verða seldir í sæti í borðhaldi en ekki í sæti á dansleik. Aðgangseyrir kr. 6.900 og eru tveir drykkir innifaldir.

Sérstakt fyrirkomulag er í miðasölunni eins og sagt er frá í nýjasta tölublaði Sjónaukans. Fyrirkomulagið er svohljóðandi:

  • Við innganginn skrifa þeir sem ætla að kaupa miða nafn sitt á blað, afgreiðsluröð á miðum fer eftir þessu blaði.
  • Einungis þeir sem hafa aldur til fá afgreidda miða.
  • Við kaup á miðum er einn afgreiddur í einu og greiðir með einni greiðslu, peningum eða kreditkorti.

Eftir mánudagskvöldið verður hægt að kaupa miða í byggingavörudeild KVH.

 

 

 

Fleiri fréttir