Miðasala hafin á mergjað „show“ í Sæluviku

Miðasalan er hafin á Sæluvikutónleikana sem haldnir verða Íþróttahúsinu á Sauðárkróki þann 1. maí. „Ég ætla að leyfa mér að fullyrða það að það hefur ekki verið gert stærra „show“ í Skagafirði,“ sagði Adam Smári Hermannsson skipuleggjandi tónleikana í samtali við Feyki.

Á tónleikunum verður haldið í dægurlagahefðina frá því hin vinsæla Dægurlagakeppni var haldin á Sæluviku síðast fyrir fjórum árum. Á svið stígur stórskotalið söngvara og flytur íslenskar dægurlagaperlur, þau Jógvan Hansen, Eurovisionfarinn Alma Rut úr Vestanáttinni, Rúnar Örn úr Sixties og Birgitta Haukdal. Heimamenn munu heldur ekki að láta sig vanta og má nefna Róbert Óttarsson, Sigvalda Gunnarsson og Kristján Gíslason.

40 feta gámur stútfullur af búnaði, til að gera tónleikana sem glæsilegasta, er á lagður af stað frá Exton í Reykjavík til Sauðárkróks og er væntanlegur í kvöld. Að sögn Adams Smára dugði gámurinn þó ekki til og þurfti að senda annan bíl til að sækja restina. Meðal þess er stór LED skjár, sem m.a. hefur verið notaður í Ísland got Talent á Stöð 2, og verður lifandi grafík á skjánum meðan á tónleikunum stendur sem gerir enn meira úr „show-inu“, að sögn Adams Smára. Þannig að það verður ekki bara ljósabúnaður sem mun gera þessa upplifun stórkostlega.

„Ég fæ húsið afhent í kvöld eftir leikinn, þá förum við í það að tæma bílinn. Þetta verður mergjað „show“ alveg saman hvernig er litið á það - við erum með flotta söngvara og flott lagaval en flutt verða 24 dægurlög í heildina. Síðan verður slegið upp balli þar sem þau eru öll að fara koma fram ásamt hljómsveitinni Von.“

Tryggja sér miða sem fyrst

Húsið opnar kl. 20 og byrjar „showið“ kl. 20:30 en ballið hefst á miðnætti og stendur til kl. 3. Miðasala fer fram í Blóma- og gjafabúðinni Sauðárkróki og á Tix.is. Á föstudag verður miðasala í Íþróttahúsinu frá kl. 12-16 og við hurðina um kvöldið þegar húsið opnar. Miðaverð á tónleikana er 5900 kr. Þeir sem eru búnir að kaupa miða á tónleikana fá ballið innifalið en fyrir þá sem vilja bara skella sér á ball kostar það 2500 kr. Posi verður á staðnum. Adam Smári hvetur þó alla til að tryggja sér miða sem fyrst.

„Það er alveg tilvalið bæði fyrir einstaklinga og hópa, fyrirtæki og starfsmannafélög og skella sér saman á Sæluvikutónleikana. Ef það eru starfsmannafélög eða hópar að koma saman, þá má alltaf hafa samband og fá hópafslátt,“ segir Adam Smári.

„Númer 1,2 og 3 er að fólk mæti - þetta er í raun fyrsta prófraun mín hvort þetta er gerlegt ef þetta heppnast mjög vel núna þá sé ég alveg fram á að halda þessa tónleika næstu árin,“ sagði Adam Smári að endingu.

Hægt er að hafa samband við Adam Smára í síma 7750775 eða netfangið dammi@dammi.is.

Fleiri fréttir