Mikið um að vera hjá hestamönnum í Húnaþingi vestra

Mikið er um að vera hjá hestamönnum í Húnaþingi vestra, í ágústmánuði. Helgina 20. – 21. ágúst verður íþróttamót Þyts, hestamannafélags Vestur Húnvetninga.

Samkvæmt heimasíðu félagsins, thytur.123.is, er mótið opið og þar verður keppt í fjölmörgum flokkum. Mótanefndin áskilur sér þó rétt til að fella niður flokka ef ekki er næg þátttaka.

Keppt verður í:

  • Tölti: 1. og 2. flokkur
  • Fjórgangi: 1. og 2. flokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur og barnaflokkur
  • Fimmgangi: 1. flokkur, T2, 100 metra skeiði, gæðingaskeiði, brokki og stökki.

Síðsumarsýning kynbótahrossa verður svo á Hvammstanga, þriðjudaginn 23. ágúst. Dómar fara fram þriðjudag og miðvikudag og loks yfirlitssýning fimmtudaginn þann 25. ágúst.

Skráning fer fram á rhs@bondi.is eða í síma 451 2602 og verður opið fyrir hana til 18. ágúst. Við skráninguna þarf að koma fram nafn og kennitala sýnanda, nafn og kennitala greiðanda og upplýsingar um hrossið, fullnaðardómur eða bygging og hæfileikar. Sömuleiðis óskir um tíma ef einhverjar eru.

Gjald er 15.000 kr. fyrir fullnaðardóm en 10.500 fyrir annað hvort byggingu eða hæfileika. Nánari upplýsingar má sjá á rhs.is.

Fleiri fréttir