Mikið um að vera í körfunni um helgina
Það verður í mörg horn að líta um helgina hjá iðkendum körfuknattleiksdeildar Tindastóls um helgina þar sem 10. flokkur stúlkna spilar heima í B-riðli, drengjaflokkurinn á heimaleik við Val og 7. flokkur stúlkna og 9. flokkur drengja keppa syðra.
10. flokkur stúlkna keppir heima í B-riðli og verður leikin tvöföld umferð við KFÍ sem féll niður úr A-riðli síðast og Fjölni, sem sigraði C-riðilinn. Drengjaflokkur spilar hér heima við Valsmenn, en leik liðanna var frestað á dögunum að ósk þeirra Valsmanna. Strákarnir eru ósigraðir í þremur fyrstu leikjum sínum en Valsmenn hafa aðeins unnið einn leik af fjórum. Leikurinn hefst kl. 16.00 að því gefnu að leiktími fjölliðamóts 10. flokks stúlkna standist.
Vegna fjölliðamóts 10. flokks stúlkna og heimaleiks drengjaflokks, færast helgaræfingar niður í barnaskólasal. Þá fer 7. flokkur stúlkna alla leið á Flúðir um helgina og spila stelpurnar þar við Hrunamenn, Ármann, KR og Keflavík í A-riðli.
9. flokkur drengja spilar í Toyota-höllinni í Keflavík í B-riðli og andstæðingar þeirra verða lið Stjörnunnar, Keflavíkur, Hamars/Þórs og FSu.
Meistaraflokkurinn lýkur svo helginni með heimaleik í Lengju-bikarnum gegn Snæfelli.
Nánar á Tindastóll.is.