Mikið um að vera í Þytsheimum

Það verður margt við að vera í Þytsheimum á Hvammstanga næstu helgar en nú á laugardag verður haldin Stórsýning í Þyts á laugardaginn og Grunnskólamót á sunnudag.

Stórsýningin hefst kl.  20:30 þann 2. apríl en þar verður boðið upp á glæsisýningar. Stóðhestar, gæðingamæður framtíðarinnar, skeið, ræktunarbú, hestafimleikar, skrautsýning og óvænt atriði.  
Aðgangseyrir 1500 kr.
Frítt fyrir 12 ára og yngri

Sunnudaginn 3. apríl verður svo Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra haldið í reiðhöllinni Þytsheimum og hefst það klukkan 13:00  Þetta er síðasta mótið í vetur og verður spennandi að sjá hvaða skóli ber sigur úr bítum.

 Keppt verður í:    

  • 1. - 3. bekkur  fegurðarreið
  • 4. - 7. bekkur tölt
  • 8. - 10. bekkur tölt
  • 8. - 10. bekkur skeið
  •  

Staða skólanna eftir tvö mót

  • 1. Varmahlíðarskóli 67
  • 2. Húnavallaskóli 62
  • 3. Árskóli 40
  • 4. Gr. Húnaþings vestra 39
  • 5. Blönduskóli 27
  • 6. Gr. Austan vatna 26

Þá verður lokamót Sparisjóðs-liðakeppninnar haldið föstudaginn 8. apríl þar sem keppt verður í tölti. Keppt verður í 1. 2. 3. og unglingaflokki. Þar verða tveir inn á í einu og verður stjórnað af þul. Prógrammið er hægt tölt, hraðabreytingar og fegurðartölt og verður ekki snúið við.

Skráning sendist á email kolbruni@simnet.is og lokaskráningardagur er þriðjudagurinn 5. apríl. Sjá nánar á http://thytur.123.is/

Fleiri fréttir