Mikið um ósmöluð lönd eftir hreppaskil
Eitthvað hefur verið um það að landeigendur eða umráðamenn sinni ekki þeim skyldum sínum sem samkvæmt Fjallskilareglugerð Svf. Skagafjarðar skyldar þá til að hreinsa land sitt af búfé annarra og koma því til næstu skilaréttar. Fé stímir til fjalls eftir að það var sett í upprekstrargang.
-Það er allt of mikið um ósmöluð lönd eða þá að landeigendur smala seint og stundum eftir alla slátrun, segir Jónína Stefánsdóttir fjallskilastjóri í Staðarfjöllum í Skagafirði. -Hitt er líka grafalvarlegt mál þegar rekið er í upprekstraganginn, komið fram í miðjan okt. og fé stímir beint til fjalls. Af gefnu tilefni eru bændur og búalið beðnir að koma öllum óskila fénaði til réttar þar sem styst er að koma því, en ekki reka til afréttar, segir Jónína og vill minna á þá skyldusmölun sem er fyrir hreppaskil. Að öðrum kosti er hægt að láta smala á kostnað landeiganda. -Svo er sjálfsögð kurteisi við fjáreigendur sem eiga fénað í ósmöluðum girðingum langt eftir hausti bara að keyra því til síns heima.