Mikil stemming á uppskeruhátíð GSS

Uppskeruhátíð barna og unglingastarfs Golfklúbbs Sauðárkróks var haldin sl. laugardag. Á vef golfklúbbsins segir að flott mæting hafi verið á uppskeruhátíðina og mikil stemming.

Dagskráin hófst á Flötinni, húsnæði golfklúbbsins í  Borgarflöt á Sauðárkróki, en þar var tekið létt púttmót og allir fengu að prófa golfherminn. Að því búnu var farið í golfskálann þar sem allir fengu gjöf frá KPMG og síðan voru veittar viðurkenningar fyrir starfið.

Viðurkenningar hlutu:

Bestu kylfingarnir voru þau Aldís Ósk Unnarsdóttir og Elvar Ingi Hjartarson

Mestu framfarir hlutu Bogi Sigurbjörnsson, Reynir Bjarkan Róbertsson og Telma Ösp Einarsdóttir

Efnilegust voru Anna Karen Hjartardóttir og Hákon Ingi Rafnsson

Bestu ástundum fengu Maríanna Ulriksen og Gabríel Brynjarsson.

Síðan voru veitt verðlaun fyrir þau sem voru til fyrirmyndar bæði innan vallar sem utan. Þau hlutu Hildur Heba Einarsdóttir og Arnar Freyr Guðmundsson.

Fleiri fréttir