Mikil tækifæri fyrir söluaðila á Landsmótinu
Aðstandendur Landsmóts hestamanna eru nú í óðaönn að skipuleggja markaðstorg mótsins. „Mikil hefð er fyrir blómlegri verslun með margvíslegan varning á landsmótum og verður mótið á Hólum í sumar sannarlega engin undantekning þar á. Forsala aðgöngumiða hefur þegar slegið öll met og allir munu leggjast á eitt til að gera þetta Landsmót það glæsilegasta til þessa,“ segir í fréttatilkynningu.
„Lifandi og veglegt markaðstorg er hluti þess sem býr til skemmtilegan og eftirminnilegan viðburð en það er einmitt markmið okkar,“ segir Einar Kolbeinsson sem hefur umsjón með þessum hluta Landsmótsins á Hólum. Áhersla verður lögð á að skapa líflega torgstemmingu á svæðinu, t.d. með tónlist og kynningum með virkri þátttöku söluaðila.
„Hólar bjóða upp á frábæra aðstöðu og við munum leggja mikla áherslu á að tryggja gott flæði fólks um mótssvæðið og að markaðstorgið verði órofa hluti af þeirri heild,“ segir Einar enn fremur og hvetur alla sem falbjóða vörur eða þjónustu til að skoða þetta tækifæri vandlega.
Nánari upplýsingar um markaðstorgið er að finna inn á vef Landsmóts, landsmot.is og hjá Einari sem er með netfangið einar@landsmot.is.