„Mikilvæg viðurkenning fyrir konur í nýsköpun“
Hólmfríður Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Iceprotein og Protis á Sauðárkróki hlaut í síðustu viku hvatningarverðlaun Félags kvenna í atvinnurekstri, FKA. Hún er með meistarapróf í næringarfræði og doktorspróf í matvælaefnafræði og framkvæmdastjóri Iceprotein og Protis á Sauðárkróki.
Hjá Iceprotein er unnið að rannsóknum og þróun í matvælaframleiðslu, auk þjónustu við slíka framleiðslu en Protis var á síðasta ári stofnað sérstaklega utan um framleiðslu á fiskpróteinum. Blaðamaður Feykis kíkti á skrifstofu Hólmfríðar þegar hún var nýkomin heim með þessi eftirsóttu verðlaun og spurði hana út í bakgrunninn, fyrirtækin og starfsemi þeirra, sem og þýðingu verðlauna af þessu tagi.
Hólmfríður segir mikla samkeppni ríkja á þessum markaði og því sé um mikið langhlaup að ræða. „Það er mikið úrval af fæðubótarefnum á markaðnum og komin mikil reynsla á framleiðslu þeirra en fólk þekkir ekki fiskprótein,“ segir hún. „En viðtökurnar eru góðar og það þykir mjög jákvætt að þetta sé íslenskt og unnið úr villtum fiski,“ segir Hólmfríður m.a. í opnuviðtali í nýjasta tölublaði Feykis sem kemur út í dag.