Mikilvægi hrognastærðar fyrir svipfarsbreytileika og aðskilnað stofna

Feykir sagði á dögunum frá því að þrjú verkefni, sem stýrt er af starfsmönnum Háskólans á Hólum, hefðu hlotið styrkloforð frá Rannís. Í sömu frétt var svo sagt nánar frá einu þessara verkefna, sem ber yfirskriftina Líffræðileg fjölbreytni í grunnvatni á Íslandi. Annað verkefnið sem styrkinn hlaut, ber yfirskriftina Mikilvægi hrognastærðar fyrir svipfarsbreytileika og aðskilnað stofna.

Verkefninu stýrir Camille Anna-Lisa Leblanc og með henni starfa þau Bjarni K. Kristjánsson og Skúli Skúlason frá Háskólanum á Hólum, Sigurður S. Snorrason og Zophonías O. Jónsson frá Háskóla Íslands og Katja Räsänen frá EAWAG í Sviss. Auk þess er ætlunin að ráða doktorsnema að verkefninu.

Svipfar lífvera er margbreytilegt, innan og milli tegunda, stofna og systkina. Ein helsta áskorunin innan þróunarfræðinnar er að greina hvaða þættir móta þennan breytileika og hvert mikilvægi hans fyrir afkomu einstaklinga sé. Rannsóknir hafa sýnt að móðuráhrif eru mikilvægur þáttur í mótun svipfars.

Stærð hrogna er dæmi um móðuráhrif hjá fiskum en þekking á áhrifum hrognastærðar á þróun afbrigða og stofna er mjög lítil. Í þessu verkefni beinast rannsóknirnar að bleikju (Salvelinus alpinus) og leitað er svara við eftirfarandi spurningum:

1) Hversu mikill breytileiki er  í hrognastærð milli stofna og hvaða áhrif hefur þessi breytileiki á svipgerð og afkomu seiða?

2) Hefur hrognastærð áhrif á þróun mismunandi samsvæða afbrigða?

3) Hversu mikið tengist hrognastærð gentjáningu í fóstrum?

Beitt verður nýstárlegum aðferðum í verkefninu. Lagt verður mat á breytileika í hrognastærð og -fjölda, innan og milli bleikjustofna sem eru á mismunandi stigum í þróun vist- og svipfarslegs aðskilnaðar. Rannsakað verður hvernig þessi breytileiki tengist svipgerð afkvæma innan og milli hrygna. Afkvæmi verða alin á ólíku fóðri til að rannsaka tengsl hrognastærðar og umhverfisáhrifa. Ennfremur verður samband hrognastærðar og genatjáningar fyrir svipgerð afkvæma metið.

Verkefnið mun auka þekkingu á mikilvægum þáttum varðandi mótun og viðhald líffræðilegs fjölbreytileika.

 

Fleiri fréttir