Mikilvægi úrbóta við Tröllaborg ítrekað
Heilbrigðisnefnd hefur ítrekað við byggðaráð Skagafjarðar erindi frá því í maí á þessu ári þar sem farið er fram á að sveitafélagið sendi nefndinni tímasetta áætlun um úrbætur á lóð leikskólans Tröllaborgar á Hofsósi.
Á fundi byggðaráðs í gær var samþykkt að ráðast í framkvæmdir og úrbætur samkvæmt tilögum umsjónarmanns eignasjóðs. Ekki var gert ráð fyrir þessum kostnaði við gerð fjárhagsáætlunar en áætlaður kostnaður er kr 2.430.000,-
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir bókaði; "Gott og mikilvægt að farið verði í þessar brýnu endurbætur. Ég hefði viljað sjá þessa framkvæmd í fjárhags- og framkvæmdaáætlun ársins."