,,Mikilvægt að drekka nóg af vatni"

Jóndís Inga Hinriksdóttir er 17 að verða 18 ára gömul. Hún er á öðru ári í FNV og býr á heimavistinni og hlakkar til að komast heim í sumarfrí.

Hver eru þín helstu áhugamál?

Mín helstu áhugamál eru ljósmyndun, tíska og förðun. Svo finnst mér ótrúlega gaman að gera eitthvað til að hjálpa öðrum. Hef oft sagt að það sé bara eitt af mínum áhugamálum, að hjálpa öðrum.

11143722_10204046926873344_8006367950051450597_n

Hver er þín daglega förðunarrútína?

1. Primer: 5 sec Perfect Blur frá Garnier

2. Sensai Bronzing Gel yfir andlitið

3. True Match Concealer frá L‘oréal undir augun

4. Svo nota ég sólarpúður frá Sensai eða MAC Golden Bronzing Powder úr Aquatic línunni. Fer eftir skapinu mínu hvort ég nota


5. Nota Bobbi Brown Creamy Eye Pencil fyrir mjúka eyeliner línu.


6. Ég fylli upp í augabrúnirnar með Eyebrow Kit frá Elf og Body Shop.


7. Skelli smá Wonder Powder frá Make Up Store í litnum Sahara á vel valdna staði til að fá smá glow á húðina.


8. Ég nota yfirleitt gyllta L‘oréal Telescopic maskarann daglega en Lancome Grandiose ef ég er að fara eitthvað fínna.


9. Chubby Stick frá Clinique í litnum Curviest Caramel á varirnar. Flirty Orange verður oft fyrir valinu við fínni tilefni.

Svo hreinsa ég húðina með E-vitamin Cleanser og Toner frá Body Shop. Set á mig rakakremið Nordic Moisture Match, dry to very dry skin frá Garnier bæði kvölds og morgna. Þetta krem var himnasending þegar ég fann það. Hafði prufað margt á þurru húðina mína og fátt virkaði fyrr en ég prufaði þetta frá Garnier. Skemmir heldur ekki fyrir hvað það er ódýrt.

daglega.förð

.sdf

Hver er þín uppáhalds förðunarvara?

Bronzing gelið frá Sensai. Getur gert virkilega leiðinlega daga góða!

17-Bronzing-Gel

Hvenær byrjaðir þú að farða þig?

Of ung að mínu mati. Held það hafi verið í kringum 6. eða 7. bekk. Ungar stelpur þurfa að læra að vera ánægðar með sig náttúrulegar áður en þær byrja að mála sig. Það tók mig langan tíma að sætta mig við mig náttúrulega eftir að ég fór að fikta í förðunardóti.

11041701_10204046926913345_4385906962534394071_n

Hvað er þitt versta „förðunarslys“?

Þegar ég byrjaði að plokka augabrúnirnar var ég hættulega nálægt því að plokka þær bara af. Þá fór ég að teikna þær með svörtum eyeliner blýanti. Hryllilegt. Þetta var í kringum 7. bekk held ég.

 
En svona almennt, hver eru þá algeng „förðunarslys“ að þínu mati?

Of svartar augabrúnir og of dökkt meik er ekki kúl. Skinku-tímablið var einmitt of svartar augabrúnir og of dökkt meik. Ég græt það allavega ekki að flestar „skinkur“ séu útdauðar.

11160654_10204046926953346_3739354663704543288_o

Hvað er þitt helsta náttúrulega leyndarmál að betra útliti?

Vatn. Drekka nóg af vatni. Það er ótrúlega mikilvægt fyrir bæði líkama og sál. Ég finn það að húðin mín virkar heilbrigðari þegar ég passa mig að drekka nóg vatn.

Lítur þú upp til einhvers einstaklings þegar kemur að förðun?

Nei, ekki þannig. Vafra bara oft um á Pinterest til að fá innblástur af t.d. fallegum förðunum.

pinterest

Ef þú mættir velja hvern sem er í heiminum til að kíkja í snyrtitöskuna hjá, hvern myndir þú velja?

Jessica Alba er alltaf svo gullfalleg. Væri til í að kíkja á leyndarmálin hennar.

Jessica-Alba-3

Eitthvað að lokum?

Nemendur FNV, setjið X við Jóndísi í forseta á miðvikudaginn!

11169875_10204046927953371_2174683363686807646_n

Fleiri fréttir