Missti nánast allt sitt í brunanum
Hjördís Tobíasdóttir, íbúi í Geldingaholti 1 í Skagafirði, missti nánast allar sínar eigur þegar íbúðarhúsið þar brann í gær. Tilkynnt var um eld í húsinu upp úr klukkan hálffimm í gær, en talið er að hann hafi kviknað í þegar verið var að leggja nýtt inntak fyrir heitt vatn í húsið. Formleg rannsókn á upptökum eldsins stendur nú yfir.
Hjördís segir að aðeins hafi tekist að bjarga myndaalbúum, tölvu og fáeinum persónulegum munum og telur hún að allt annað sem í húsinu var sé ónýtt. Enginn var í húsinu þegar útkallið barst, en það voru starfsmenn Skagafjarðarveitna sem tilkynntu um eldinn. Var allt tiltækt slökkvilið í Skagafirði kallað út og farið með öll tæki og búnað á staðinn, auk þess sem mjólkurbíll var fenginn til að dæla vatni, sem og haugsugur og fleiri tæki sem tiltæk voru.
Þegar blaðamaður Feykis fór á vettvang á ellefta tímanum í gær stóð slökkvistarf enn yfir, eins og sjá má á myndum sem Feykir birti í gær. Slökkvistarfi lauk um eitt í nótt, en til að ráða niðurlögum eldsins þurfti að brjóta niður það sem eftir stóð af húsinu, en húsið var einangrað með torfi og hafði breiðst hratt út. Dælubíll var á staðnum í nótt og tveir slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Skagafjarðar stóðu öryggisvakt til klukkan átta í morgun, er vettvangur brunans var afhentur lögreglu.
Að sögn Lögreglunnar á Norðurlandi vestra er tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu nýlega komin á vettvang og formleg rannsókn á orsökum brunans er því hafin. Eins og sja´má á meðfylgjandi myndum stendur aðeins kjallari hússins eftir, en eldur komst ekki í gamlan torfbæ sem var sambyggður húsinu, né heldur trjágróður umhverfis húsið.