Mistök á ritaraborði kostuðu Tindastól eitt leikhlé
Á spjallvef Tindastóls skýrir Kári Marísson frá því að ástæða þess að Tindastóll nýtti ekki öll leikhlé sín í bikarleik á móti KR um síðustu helgi sé sú að vegna mistaka á ritaraborði fengu þeir ekki sitt þriðja hlé í síðara hálfleik og var þeim greint frá því að þeir væru búnir með sín hlé.
Á spjallinu segir Kári; „Ekki könnuðumst við við það en fengum ekki breytt. Við skoðun á útsendingu rúv kemur skýrt fram að KR tekur þrjú leikhlé en við aðeins tvö. Hvernig starfsmenn og ekki síst eftirlitsdómari fengu annað út verða þeir að útskýra, en ég hvet fólk til að skoða útsendinguna, þar kemur þetta skýrt fram. Takk stuðningsmenn fyrir frábæran stuðning það sem af er tímabilinu, áfram Tindastóll“