Mjólkursamsölunni skipt í innlenda og erlenda starfsemi

Eigendur og stjórn Mjólkursamsölunnar hafa ákveðið að skipta starfsemi sinni upp í sjálfstæð félög í sömu eigu, sem sinni annars vegar innlendri og hins vegar erlendri starfsemi. Er þessi breyting nú rökrétt framhald á þeirri vegferð sem hófst um mitt ár 2018, þegar stofnað var sérstakt dótturfélag um erlenda starfsemi Mjólkursamsölunnar, Ísey útflutningur ehf.

Í tilkynningu frá MS segir að það hafi verið gert bæði til að mæta áskilnaði í samningum ríkisins og bænda um fjárhagslegan aðskilnað innlendrar og erlendrar starfsemi, og einnig til að skerpa stjórnunarlegar áherslur og sýn á mismunandi verkefni.

Ari EdwaldAri Edvald.

„Með breytingunni nú færast Ísey útflutningur og eignarhlutur í móðurfélagi Ísey Skyr Bars í félagið MS erlend starfsemi ehf. og eignarhlutur í bandaríska skyrfyrirtækinu Icelandic Provisions í félagið MS eignarhald ehf. Bæði þessi félög verða í eigu samvinnufélaganna Auðhumlu og Kaupfélags Skagfirðinga, eins og Mjólkursamsalan ehf., segir í tilkynningunni.  

Pálmi VilhjálmssonPálmi Vilhjálmsson.

Ari Edwald, sem hefur verið framkvæmdastjóri Ísey útflutnings, undanfarið rúmt ár samhliða forstjórastarfi hjá Mjólkursamsölunni, mun hér eftir stýra MS erlendri starfsemi og MS eignarhaldi og alfarið sinna erlendri starfsemi. Pálmi Vilhjálmsson, núverandi aðstoðarforstjóri, verður forstjóri Mjólkursamsölunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir