Mótmæla niðurstöðum úthlutunar byggðakvóta
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins mótmælir harðlega niðurstöðum úthlutunar byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2016-2017 en tillaga þess efnis var samþykkt á fundi hennar í síðustu viku eftir að bókun atvinnu- menningar- og kynningarnefndar var borin upp. Niðurstaða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis hvað Skagafjörð varðar er að úthluta aðeins 19 þorskígildistonnum til Hofsóss en engum byggðakvóta til Sauðárkróks.
Nefndinni barst rökstuðningur ráðuneytisins fyrir úthlutuninni og er niðurstaðan með öllu óásættanleg að mati hennar. Segir í bókun nefndarinnar að ljóst sé að reglur um úthlutun byggðakvóta mæti engan veginn tilgangi þess að úthluta byggðakvóta til byggðarlaga sem standa höllum fæti, s.s. eins og til Hofsóss. Þá sé með engu móti hægt að sjá hvernig aukin veiði á rækju hefur með veiðar smábáta frá Sauðárkróki að gera.
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar skorar á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að breyta nú þegar reglum um úthlutun byggðakvóta og úthluta kvótanum að því loknu á grundvelli nýrra reglna um byggðakvóta sem raunverulega ná því markmiði að styðja við veikari byggðir landsins.