Multi Musica hópurinn með útgáfutónleika í Salnum

Viltu koma í heimsreisu með Multi Musica? Þann 17.september verða útgáfutónleikar Multi Musica hópsins í Salnum Kópavogi en diskurinn Unus Mundus er nýkominn út. Á diskinum eru 13 lög frá 11 löndum, farið er í ferðalag í fylgd tónlistar frá Mexíkó, Chilé, Kúbu, Brasilíu, Suður-Afríku, Keníu, Indlandi, Rúmeníu, Spáni, Grikklandi og endar ferðin á Íslandi.

Hópinn skipa níu tónlistarmenn úr Skagafirði en diskurinn er gefinn út í samstarfi við Soroptimistaklúbb Skagafjarðar og Vini Kenía en hluti af ágóða disksins rennur til uppbyggingu Lakeview skólans í Maeri við Viktorívatnið í Kenýa.

Ásdís Guðmundsdóttir, söngur og ásláttur

Íris Baldvinsdóttir, bakraddir og ásláttur

Jóhanna Óskarsdóttir, bakraddir og ásláttur

Jóhann Friðriksson, trommur

Margeir Friðriksson, bassi

Ólöf Ólafsdóttir, bakraddir og ásláttur

Rögnvaldur Valbergson,hljómborð og harmonikka

Sorin Lazar, gítar

Sveinn Sigurbjörnsson, trompett

Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og er aðgangseyrir kr.2.500

Fleiri fréttir