Multi musica með útgáfuteiti í kvöld

Í kvöld ætlar Multi musica hópurinn að halda útgáfuteiti í hinu sögufræga húsi Gúttó á Sauðárkróki þar sem fagnað verður útgáfu geisladisksins Unus Mundus. Húsið opnar kl 20:00.

 

Að sögn Ásdísar Guðmundsdóttur verður kósý stemning, kakó og sérbakaðar súkkulaði – chili muffins á boðstólnum ásamt því að á veggjum hanga myndir listamanna hússins. Að sjálfsögðu verða lögin af disknum flutt í viðhafnarútgáfu og hægt að kaupa hann á staðnum.

Fleiri fréttir