Mun gleðja augu gesta staðarins

Stytta eftir Guðmund frá Miðdal sem nú hefur verið sett upp í Sjávarborg á Hvammstanga. Mynd: KSE
Stytta eftir Guðmund frá Miðdal sem nú hefur verið sett upp í Sjávarborg á Hvammstanga. Mynd: KSE

Styttu eftir Guðmund frá Miðdal, sem Jósefína Helgadóttir gaf Kvenfélaginu Björk á Hvammstanga árið 1960, hefur nú verið fundinn nýr staður á veitingastaðnum Sjávarborg á Hvammstanga. Þykir hún fara vel þar og falla vel inn í sjávarþema staðarins og hönnuðu arkitektar hjá Arkibúllunni undirstöðu undir hana sem Ágúst Þorbjörnsson, stálsmiður á Hvammstanga, smíðaði.

„Forsaga málsins er sú að Jósefína Helgadóttir bjó um tíma á Hvammstanga og síðar á Laugarbakka. Jósefínu þótti mjög vænt um Hvammstanga og keypti því þessa styttu fyrir kvenfélag staðarins. Styttan er eftir Guðmund frá Miðdal og var sett upp í lystigarði Kvenfélagsins Bjarkar árið 1960 Þar stóð hún alveg þangað til árið 2014, þegar hún var send til viðgerðar, en tíminn hafði sett nokkurt mark á hana,“ sagði Sigríður Karlsdóttir, ritara Kvenfélagsins Bjarkar, í samtali við Feyki í vikunni.

„Henni var fundin nýr staður á veitingastaðnum Sjávarborg sem mun hýsa hana fyrir kvenfélagið næstu árin og mun hún gleðja augu gesta veitingastaðarins,“ sagði Sigríður ennfremur. 

Fleiri fréttir