Mynd Baltasars í þrívídd
Kvikmynd Baltasars Kormáks, Everest, verður frumsýnd 27. febrúar á næsta ári, eins og Universal-kvikmyndaverið hefur tilkynnt um og fram kemur á Mbl.is í dag. Myndin verður, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá Universal, í þrívídd en hún byggir á sannsögulegum atburðum um eitt mannskæðasta óveður á fjallinu.
Þetta kemur fram á vef Hollywood Reporter. Baltasar og tökulið hans hefur verið í Nepal við tökur en með aðalhlutverkin í myndinni fara þeir Josh Brolin og Jake Gyllenhaal. Tökur fara einnig fram í ítölsku ölpunum og Pinewood-myndverinu í London. Hún mun að öllum líkindum keppa um hylli bandarískra áhorfenda við nýjustu kvikmynd Ryan Reynolds, Selfless.
Universal sendi í gærkvöld frá sér yfirlýsingu þar sem tilkynnt var um frumsýningardaga helstu mynda kvikmyndaversins. Meðal þeirra eru Crimson Peak eftir Guillermo del Toro og Pitch Perfect 2. Fyrrnefnda myndin verður frumsýnd í október 2015 en sú síðarnefnda næsta sumar.