Myndir af Skagfirsku matarkistunni
Matarkistan Skagafjörður vakti verðskuldaða athygli á sýningunni Matur-inn sem haldin var á Akureyri fyrr í mánuðinum. Þar kynntu fulltrúar Matarkistunnar skagfirskan ost frá KS, auk þess sem einstakir framleiðendur og veitingaaðilar kynntu það sem þeir hafa upp á að bjóða.
Þannig mætti Róbert bakari með brauð úr skagfirsku hveiti frá Ökrum, nokkuð sem vakti mikla athygli, sem og orkubitarnir hans, Kristín frá Ólafshúsi kynnti reyktan Drangeyjarlunda, Jón Daníel bauð upp á saltfiskrétt, Herdís í Áskaffi bakaði pönnukökur og bauð smakk af lagtertum og Svanhildur hótelstjóri í Varmahlíð bauð upp á grafna hrossalund í tilefni af hrossablótinu sem fram fer 15. okt. Þá var skagfirski bjórinn Gæðingur einnig kynntur á sýningunni.
Alls er talið að 13-15 þús. gestir hafi sótt heim sýninguna sem fór mjög vel fram í alla staði.
Myndir og texti: Áskell Heiðar