Myndir af smáhýsum á Hvammstanga
Verið er að koma fyrir níu smáhýsum í Kirkjuhvammi á Hvammstanga, eins og Feykir.is greindi frá á miðvikudag. Eigendur smáhýsana er Reykjarhöfði ehf. sem er í eigu Kaupfélags Vestur Húnvetninga, Sláturhús KVH, Tveir smiðir ehf. og Vignir Skúlason.
Smáhýsin eru ákveðin svörun við aukinni ferðaþjónustu á svæðinu og er þetta hugsað til að vera í samvinnu við aðra ferðaþjónustuaðila og gistimöguleika á svæðinu en ekki samkeppni. Þá er ráð fyrir að smáhýsin verði fyrir starfsmenn SKVH í tvo mánuði á ári, yfir sláturstíð, að sögn Vignis Skúlasonar.
Anna Scheving tók nokkrar myndir af framkvæmdinni og sendi Feyki góðfúslega myndirnar til birtingar.