Myndröð frá Laufskálarétt hlýtur blaðaljósmyndaraverðlaun
Sýning íslenskra blaðaljósmyndara opnaði í Perlunni sl. laugardag. Við opnunina voru nokkrum ljósmyndurum veitt verðlaun fyrir bestu myndir ársins 2015 en þeirra á meðal var myndröð Heiðu Helgadóttur frá Laufskálarétt. mbl.is greinir frá.
Samtals voru veitt verðlaun í sjö flokkum. Eggert Jóhannesson átti bestu íþróttamynd ársins. Tímaritamynd- og mynd ársins 2015 átti Eyþór Árnason en Haraldur Þór Stefánsson átti Umhverfismynd ársins 2015. Kristinn Magnússon og Heiða Helgadóttir sigruðu í tveimur flokkum, Kristinn átti Fréttamynd og Portrait mynd ársins 2015 en Heiða Daglegt líf mynd ársins og myndröð ársins 2015.
Um myndröð Heiðu frá Laufskálarétt segir dómnefnd: „Serían sýnir á mjög raunsæjan hátt hvernig hestaréttir eru. Ljósmyndarinn sýnir okkur mismunandi vinkla sem fær áhorfandann til að finnast eins og hann sé á staðnum. Myndirnar eru fallega unnar og sagan er fjölbreytileg.“
Sjö dómarar völdu 83 myndir á sýninguna í ár úr 904 innsendum myndum blaðaljósmyndara. Þeir völdu þar að auki sigurmynd í hverjum flokki og mynd ársins. Dómnefndina í ár skipuðu Hilmar Þór Guðmundsson, Sissa, Íris Dögg Einarsdóttir, Auðunn Níelsson, Torfi Agnarsson, Karl Petersson og formaður dómnefndar var danski fréttaljósmyndarinn Jan Grarup.
Myndir úr seríunni má sjá á vef mbl.is.