N4 heimsækir Nýprent
Nýprent var til umfjöllunar í þættinum Að Norðan á sjónvarpsstöðinni N4 sl. fimmtudag, þar ræddi María Björk Ingvadóttir við Þuríði Hörpu Sigurðardóttur framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Eins og fram kemur í viðtalinu veitir Nýprent fjölbreytta þjónustu, er með einu prentsmiðjuna á Norðurlandi vestra og heldur jafnframt úti eina fréttablaði landshlutans, Feyki.
Þuríður Harpa segir frá starfsemi Feykis og Feyki.is en blaðið hefur verið gefið út í 33 ár á þessu ári. Þegar María Björk spyr hversu mikils virði það sé fyrir samfélagið að hafa fréttablað á svæðinu svarar Þuríður Harpa að hún telji það myndi vanta mjög mikið ef það væri enginn fréttaflutningur af svæðinu frá okkur sjálfum.
„Þetta skiptir ofboðslega miklu máli menningarlega. Það er verið að fletta upp í gömlum blöðum og sjá hvað var í gangi dag frá degi, eða viku frá viku,“ segir Þuríður Harpa.
Fyrirtækið er með átta starfsmenn í vinnu að jafnaði og gefur einnig út auglýsinga- og dagskrárblaðið vinsæla Sjónhornið, sinnir hönnun, umbroti, skiltagerð og margt fleira.
Hér má sjá innslagið um Nýprent í Að Norðan.