Næsta umferð í firðinum fagra
Veður og færð hafa ekki verið rallýkeppendum hliðholl í sumar en fresta þurfti annarri umferð Íslandsmótsins sem fram átti að fara í byrjun júlí vegna snjóa á fyrirhuguðum akstursleiðum. Hins vegar er veður og færð með ágætum í Skagafirði um þessar mundir en Bílaklúbbur Skagafjarðar stendur fyrir þriðju umferðinni 24.-25. júlí næstkomandi.
Þeir TímON-félagar Baldur Haraldsson og Aðalsteinn Símonarson mæta spenntir til leiks, bíllinn bónaður og þeir félagar vel undirbúnir. Er ljóst að þeir ætla sér mikið enda Baldur á heimavelli og sigur í fyrra í reynslubanka þeirra félaga. Munu þeir etja kappi við fyrrum Íslandsmeistara eins og Henning Ólafsson og Árna Gunnlaugsson, Daníel og Ástu Sigurðarbörn og Sigurð Braga Guðmundsson og Ísak Guðjónsson. Þeir Baldur og Aðalsteinn hafa 15 stig í keppninni um Íslandsmeistaratitilinn og því mikilvægt fyrir þá að ná sér í fullt hús stiga um helgina.
Keppnin hefst föstudaginn 24. júlí við Skagfirðingabúð en þaðan liggur leiðin upp á Þverárfjall. Ekið verður eftir eftir gamla veginum en hann er ýmist vinstra eða hægra megin við núverandi þjóðveg, keppendur þurfa því að aka yfir þjóðveginn á nokkrum stöðum. Er veginum lokað fyrir almennri umferð meðan á þessu stendur en um leið og keppendur hafa farið síðari umferð er hann opnaður aftur. Geta áhorfendur þá lagt leið sína niður á Sauðárkrók en upplagt er að sitja í brekkunni fyrir ofan Kjarnann og fylgjast með er eknar verða tvær umferðir um höfnina.
Á laugardagsmorgun verður gefin út ný rásröð, mun sú áhöfn sem hefur bestan tíma eftir föstudagskvöldið leggja fyrst af stað upp á Mælifellsdal. Er þessi rúmlega 23 km leið ekin tvisvar og því nauðsynlegt að halda góðri einbeitingu alla leiða þar sem heildarlengd keppninnar er rétt um 100 km . Að loknum Mælifellsdal verður haldið yfir í Vesturdal en það er önnur lengsta leið keppninnar, rúmir 10 km. Þar þurfa keppendur m.a. að aka yfir eina á en það getur verið flókið þegar keppnisskapið er komið í hæstu hæðir.
Síðasta sérleiðin er síðan hin vinsæla leið um Nafir. Leggja keppendur af stað frá planinu fyrir framan Vörumiðlun, aka í gegnum svæði Steypustöðvarinnar og upp hjá motokross-brautinni og áfram framhjá golfskálanum. Margir góðir staðir eru fyrir áhorfendur til að fylgjast með á þessari leið, ekki síst uppi á Nöfum.
Keppninni lýkur síðan með tilkynningu úrslita við Skagfirðingabúð kl 16:00 en hægt verður að fylgjast með framvindu keppninnar á heimasíðu Bílaklúbbsins, bks.is.
/fréttatilkynning