Námskeið á vegum æskulýðsnefndar Þyts
Æskulýðsnefnd Þyts ætlar að bjóða upp á nokkur námskeið í vetur en samkvæmt heimasíðu Þyts mun það ráðast af þátttöku hvort af námskeiðunum verður. „En af viðbrögðum að dæma þá er líklegt að þau verði öll haldin,“ segir á heimasíðunni.
Námskeiðin eru:
- Byrjendahópur, 9 ára og yngri. 10 skipti á laugardögum frá kl. 11-12, verð kr. 2.000. Ábyrgðarmenn og leiðbeinendur Alla Einars og Helga Rós.
- Reiðþjálfun minna vanir. 2 bóklegir tímar og 10 verklegir tímar. Hefst í byrjun febrúar. Verð kr. 6.500. Kennari Fanney Dögg.
- Reiðþjálfun meira vanir. 2 bóklegir tímar og 10 verklegir tímar. Hefst í byrjun febrúar. Verð kr. 6.500. Kennari Fanney Dögg.
- Keppnisþjálfun. 10 verklegir tímar. Verð 6.000 kr. Kennari Fanney Dögg
- Knapamerki 2. Bóklegir tímar eru núna fyrir áramót og eru nú þegar byrjaðir. Verklegir tímar verða eftir áramót. Kennari Fanney Dögg.
- Fimleikar á hesti. 2 pláss laus eftir áramót. Verð 10.000. Ábyrgðarmenn og kennarar Irina og Kathrin.
„Ef þið eruð í vafa um hvort krakkarnir eiga frekar heima í meira eða minna vana hópnum þá getum við í samráði við Fanneyju Dögg fundið út úr því. Hún kenndi krökkunum í fyrra og veit nokkurn vegin hvar þau standa,“ segir loks á heimasíðunni.
Skráningarfrestur er fyrir lok nóvember og nánari upplýsingar sendist í netfangið thyturaeska@gmail.com.