Námsleiðinni ,,Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum" lokið á Sauðárkróki
Nýtt námskeið hjá Farskólanum fer á fulla ferð í byrjun september. Þeir sem hafa áhuga á að vera með næsta vetur eru hvattir til að skrá sig sem fyrst.
Námsleið Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins ,,Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum" er lokið skólaárið 2012 - 2013. Þetta námskeið sem er 300 kennslustundir er það fimmta í röðinni sem haldið er hjá Farskólanum.
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra mat námið til eininga inn í sinn skóla og fengu námsmenn skírteini upp á það.
Það er Fræðslumiðstöð atvinnulífsins sem gefur námsskrána út og mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur vottað hana.
Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum er nám ætlað fullorðnu fólki sem ekki hefur lokið framhaldsskóla.
Hér má skoða námskrána á rafrænu formi.
Farskólinn þakkar Fræðslumiðstöðinni og FNV gott samstarf og óskar námsmönnum til hamingju með áfangann. Farskólinn.is segir frá þessu.