Náttúruvísindamenn framtíðarinnar?

Í síðustu viku fóru komu allir bekkir Grunnskólans austan Vatna í vettvangsferð í Verið á Sauðárkróki. Hópnum var skipt í þrjá minni og fór einn þeirra í heimsókn í fiskvinnslu FISK Seafood en tveir skoðuðu rannsóknastarf og -aðstöðu Háskólans á Hólum í Verinu.

Gestirnir nutu leiðsagnar starfsmanna og framhaldsnema fiskeldis- og fiskalíffræðideildar og fengu innsýn í þær rannsóknir sem stundaðar eru á vegum deildarinnar, ýmist úti í náttúrunni eða á eldisfiski. Þeim var að lokum boðið að smakka glænýja bleikju, sem reidd var fram hrá að hætti Japana. Þessi heimsókn í Verið stóð í um tvær klukkustundir og höfðu allir gaman af, ekki síst þeir sem tóku á móti gestunum.

Fleiri fréttir