Nemendur farnir úr landi

Nemendur í 10. bekk Árskóla héldu í býtið í morgun til Danmerkur þar sem krakkarnir munu dvelja næstu vikuna í árlegu skólaferðalagi 10.bekkjar Árskóla.

Krakkarnir hafa unnið hörðum höndum að fjáröflun ferðarinnar í allan vetur og uppskera nú afrakstur erfiðis síns. Þau munu dvelja hluta tímans á heimilum danskra jafnaldra sinna. Þá ku hafa heyrst innan hópsins að eitthvað eigi að kíkja á verslanir þegar hópurinn heldur í dagsferð til Malmö.

Feykir óskar krökkunum góðrar ferðar.

Fleiri fréttir