Nemendur sitji við sama borð
Byggðaráð Skagafjarðar hefur falið sveitastjóra og félagsmálastjóra að athuga betur erindi frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, þar sem vakin er athygli á meinlegri mismunun sem framhaldsskólanemar með lögheimili sveitarfélaginu búa við hvað varðar húsaleigubætur á heimavistum, eftir því við hvaða skóla nám er stundað.
Á fundi Byggðarráðs kemur fram að ráðið telur það réttlætismál að allir framhaldsskólanemar í sveitarfélaginu sitji við sama borð varðandi rétt til húsaleigubóta og verður málið því tekið upp.