Nemendur Varmahlíðarskóla sýna Ljónið
Árshátíð yngri nemenda Varmahlíðarskóla verður haldin í Miðgarði nk. laugardag, þann 17. mars kl. 14:00. Þar munu nemendur skólans sýna verkið Ljónið, sem er leikgerð byggð á vinsælu Disney teiknimyndinni Lion King, í íslenskri þýðingu Ólafs S. K. Þorvaldz. Leikstjóri er Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir.
Að lokinni sýningu er boðið upp á kaffiveitingar í Varmahlíðarskóla en það er innifalið í miðverðinu, sem er 2000 kr. Frítt er fyrir börn á grunnskólaaldri. (Athugið – posar eru ekki á staðnum.)