Nemendur Varmahlíðarskóla taka upp stuttmynd

Nemendur í 8. bekk í Varmahlíðarskóla voru í kvikmyndagerð í vikunni og lögðu í stutt ferðalag til að ljúka tökum á stuttmynd sem nemendurnir hafa unnið að um Ásbirninga. „Þó svo sólin léti lítið á sér kræla var veðrið milt og frekar þægilegt til kvikmyndagerðar,“ segir á vef skólans.

Ásbirningasaga sýnir atburði úr Sturlungu og dregur nafn sitt af litabók sem félagið á Sturlungaslóð gaf út fyrir nokkrum árum og er söguþráður myndarinnar byggður í kringum bókina. Ásbirningar voru höfðingjar héraðsins á miðöldum og börðust um landsyfirráð við m.a. Sturlunga.

Fyrst fóru nemendur að Reykjarlaug hjá Reykjarfossi og síðan að Víðimýrarkirkju, en á báðum stöðum voru margar senur teknar upp.

Fleiri fréttir