Neyðarkallinn í Skaffó í dag

Neyðarkall björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður seldur um land allt nú um helgina en þetta er í sjötta sinn sem þessi fjáröflun fer fram og er hún orðin ein sú mikilvægasta fyrir björgunarsveitir landsins. Bj.sv. Skagfirðingasveit verður í Skagfirðingabúð á föstudaginn til klukkan 19:00 og svo verður gengið í hús á Sauðárkróki á sunnudaginn.

 

Afar mikilvægt er að vel takist til með söluna í ár þar sem björgunarsveitir hafa ekki farið varhluta af þeim tekjusamdrætti sem orðið hefur víðast hvar í þjóðfélaginu undanfarin ár. Á sama tíma hafa verkefnin verið ærin.

Fleiri fréttir