Níu leikmenn undirrita samning við Tindastól

Níu leikmenn skrifuðu undir samning við Körfuknattleiksdeild Tindastóls í gær. Samkvæmt fréttatilkynningu frá deildinni voru sjö þeirra að framlengja samning sinn við félagið en tveir voru að undirrita sinn fyrsta samning.

Þeir sem framlengdu eru Agnar Ingimundarson, Sigurður Páll Stefánsson, Friðrik Þór Stefánsson, Hannes Ingi Másson, Finnbogi Bjarnason, Viðar Ágústsson og Pétur Rúnar Birgisson. Arnar Freyr Stefánsson og Hlynur Freyr Einarsson skrifuðu undir í fyrsta sinn.

 

Fleiri fréttir