Norðurland vestra sniðgengið
Á fundi sveitarstjórnar Svf. Skagafjarðar sl. miðvikudag lýsti sveitarstjórn yfir vonbrigðum með naumt skammtaðar fjárveitingar til verkefnisins Brothættar byggðir á vegum Byggðastofnunar. Sveitarfélagið hafði sótt um vegna Hofsóss en greint var frá því í júlí sl. að bæjarfélagið hefði ekki orðið fyrir valinu að þessu sinni vegna takmarkaðrar fjárveitingar.
Í bókun sveitarstjórnar segir að umrædd afgreiðsla Byggðastofnunar sé enn eitt dæmið um það hversu Norðurland vestra er sniðgengið í fjárveitingum hins opinbera.
„Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar lýsir yfir vonbrigðum með naumt skammtaðar fjárveitingar sem veittar eru til verkefnisins Brothættar byggðir og óskar eftir að stjórn Byggðastofnunar beiti sér með Sveitarfélaginu Skagafirði í því að auknum fjármunum verði varið til þessa brýna verkefnis svo unnt verði að taka Hofsós og fleiri byggðarlög þar inn. Stjórnvöldum og stofnuninni ber að leita allra úrræða til að vinna með heimamönnum að því að styrkja byggð á Hofsósi og öðrum byggðarlögum sem hafa átt undir högg að sækja á undanförnum árum. Umrædd afgreiðsla Byggðastofnunar er enn eitt dæmið um það hversu Norðurland vestra er sniðgengið í fjárveitingum hins opinbera,“ segir í bókun Stefáns Vagns Stefánssonar, formanns byggðarráðs.
Samþykkt var samhljóða að sveitarstjórn ítreki og geri bókun frá 22. fundi atvinnu- menningar- og kynningarnefndar að sinni.