Norðurlandamót lögreglumanna í knattspyrnu haldið á Sauðárkróki
Norðurlandamót lögreglumanna í knattspyrnu mun fara fram á Sauðárkróki dagana 12. – 18. júní en hingað munu koma 180 keppendur af báðum kyndum og etja kappi. Það er starfsmannafélag lögreglunnar á Sauðárkróki sem á veg og vanda að undirbúningi mótsins en þetta mun vera í fyrsta sinn sem stórt mót á vegum íþróttasambands lögreglumanna fer fram á landsbyggðinni.
Um 11 manna fótbolta er að ræða og munu leikirnir fara fram bæði á Sauðárkróki og á Hofsósi. Föstudagskvöldið 17. júní mun síðan lokahóf keppninnar fara fram í Miðgarði.