Nú verður skraflað á Króknum

Skraflfélag Íslands ætlar að mæta á Sauðárkrók og standa fyrir spilakvöldi á Kaffi krók og kynna um leið nýja útgáfu skraflsins sem ber heitið Krafla. Útgefandi spilsins er Skagfirðingurinn Reynir Hjálmarsson í félagi við Jóhannes Benediktsson.

Þeir félagar eru jafnframt meðlimir og stjórnarmenn í Skraflfélagi Íslands, sem hefur staðið fyrir mánaðarlegum spilakvöldum á Café Haiti í Reykjavík síðan snemma árs 2013. Reynir segir fólk á öllum aldri mæta og skrafa og skrafla og fær sér súpu, köku eða öl. Í lok kvölds eru veitt verðlaun fyrir hæsta stigaskorið, stigahæstu lögnina og skrýtnasta eða frumlegasta orðið.

Opna rökkurmótið í skrafli fór fram í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði þ. 16. október. Það var vel sótt bæði af heimafólki og utanbæjarkempum. Mynd af Facebook síðu Skraflfélags Íslands.„Síðustu misserin hefur skrafliðkun mikið til farið fram á netskrafl.is, þar sem yfir 15 þúsund manns eru skráðir til leiks, en okkur hefur hreinlega vantað spil eftir að gildum og fjölda stafa í skrafli var breytt til samræmis við íslenskt tungumál. Nú hefur loksins verið ráðin bót á því með útgáfu skraflsins Kröflu,“ segir Reynir. „Síðasta haust hélt Skraflfélag Íslands spilakvöld í Grundarfirði. Var það vel sótt og upp úr því var stofnað Skraflfélag Grundarfjarðar, sem stendur fyrir mánaðarlegum spilakvöldum þar í bæ. Með þessu nýja spili er það von okkar að fleiri slík félög geti orðið til um landið, t.d. í menningarsamfélaginu Skagafirði, en fimmtudaginn 17. nóvember mun Skraflfélag Íslands einmitt standa fyrir spilakvöldi á Kaffi krók. Hefjast leikar klukkan 20.“

Fleiri fréttir