Ný heimasíða Sveitarfélagsins Skagafjarðar
Ný útgáfa heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar fór í loftið í byrjun þessa mánaðar, en hún er afrakstur undirbúnings og yfirlegu stýrihóps sveitarfélagsins og starfsfólks Stefnu, sem sá um vefhönnun. Rétt eins og á fyrri vef sá Stefna um vefsíðugerð og tæknilega útfærslu vefsins.
Búið er að endurhanna veftré síðunnar með það að markmiði að gera hana aðgengilegri og einfaldari í notkun. Þá er síðan orðin snjöll sem þýðir að hún er hönnuð og sett upp til að aðlaga sig að skjástærðum, hvort sem þú notar síðuna í gegnum hefðbundna tölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma.
Aðgengi á að vera enn betra en á eldri heimasíðu en með þjónustu frá stillingar.is er komið til móts við fólk sem á erfitt með að lesa vegna t.d. lesblindu eða sjónskerðingar. Að auki er hægt að stækka og minnka letur síðunnar og hlusta á vefþulurnar Karl og Dóru frá iWebReader lesa upp texta sem bætir aðgengi að síðunni fyrir marga.
Á öllum síðum er hægt að gera athugasemd við efni. Með því móti er leitast við að gera vonandi góðan vef enn betri. Notendur eru hvattir til að leggja lið með notkun athugasemda, því viðbúið er að við endurhönnun síðunnar séu enn einhver atriði sem mega betur fara. Er vonast til að íbúar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og aðrir velunnarar vítt og breitt um heiminn verði duglegir að heimsækja nýju síðuna og að hún eigi eftir að koma þeim að góðum notum.